Skapandi starf
Katla Gunnarsdóttir


Velkomin
á
vefsíðuna mína
Ég heiti Katla Gunnarsdóttir, gift þriggja barna móðir, og sæki dreifinám frá Brogarholtsskóla sem ber heitið Stuðningsfulltrúi í skólum. Ég hef alltaf haft gaman af því að bæta við mig þekkingu og reynslu til að kenna börnum og höfða til þeirra betur. Ég hef þegar lokið BA námi í uppeldis- og menntunarfræðum og viðbótardiplóma námi í þróunarfræðum frá Háskóla Íslands.
Í dag vinn ég sem stuðningsfulltrúi í einum af grunnskólum Reykjavíkur og líkar mjög vel. Starfið er gefandi og krefjandi í senn sem og ástæða þess að ég hóf þetta nám.
Með þessari vefsíðu held ég utan um þá vinnu sem ég gaf af mér í áfanganum og er þetta einnig lokaverkefnið mitt. Markmiðið er að halda utan um verkefnin mín og gefa öðrum hugmyndir af verkefnum. Auk þess að sýna hvað þessi áfangi hefur margt spennandi upp á að bjóða og vekja áhuga á honum.
Njótið vel
Katla