top of page

Ljóð

Í þessu verkefni átti að semja eða velja uppáhalds ljóð, ljóð sem lýsir mér eða líðan og eða tengist minningum.

Ég valdi lag eftir Villa Vill þar sem það tengist bæði neikvæðum og jákvæðum tilfinningum um upplifun og minningar úr æsku minni.

 

Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson, gjarnan kallaður Villi Vill, söng lagið Bíddu pabbi eftir Peter Collander og Geoff Stevens með texa Iðunnar Steinsdóttur á plötunni Dans Gleðinnar sem kom út árið 1999 (Jónatan Garðarsson, 2003).

Bíddu pabbi

Í hinsta sinn að heiman lágu spor mín
því ég hamingjuna fann ei lengur þar
og hratt ég gekk í fyrstu uns ég heyrði fótatak,
og háum rómi kallað til mín var.

 

Kallað: "Bíddu pabbi, bíddu mín.
Bíddu því ég kem til þín.
Æ, ég hljóp svo hratt,
að ég hrasaði og datt.
Bíddu pabbi, bíddu mín."

 

Ég staðar nam og starði á dóttur mína
er þar stautaði til mín svo hýr á brá,
og mig skorti kjark að segja henni að bíllinn biði mín
að bera mig um langveg henni frá.

 

Hún sagði: "Bíddu pabbi, bíddu mín.
Bíddu því ég kem til þín.
Æ, ég hljóp svo hratt,
að ég hrasaði og datt.
Bíddu pabbi, bíddu mín."

 

Ráðvilltur ég stóð um stund og þagði,
en af stað svo lagði aftur heim á leið.
Ég vissi að litla dóttur mín hún myndi hjálpa mér
að mæta vanda þeim sem heima beið.

 

Hún sagði: "Bíddu pabbi, bíddu mín.
Bíddu því ég kem til þín.
Æ, ég hljóp svo hratt,
að ég hrasaði og datt.
Bíddu pabbi, bíddu mín."

(DataB.us, 2009)

Heimild

 

DataB.us. (2009). Vilhjálmur Vilhjálmsson: bíddu pabbi. Sótt af http://datab.us/g2ZRpQ-5-4s#Vilhj%C3%A1lmur%20Vilhj%C3%A1lmsson%20-%20B

 

 

Jónatan Garðarsson. (2003). Einn ástsælasti söngvari landsins. Sótt af http://poppminjasafn.is/Listamenn/default.aspx?path=/resources/Controls

%C3%ADddu%20Pabbi.

/50.ascx&C=ConnectionString&Q=PagesByName&Groups=4&ID=13.

© 2016 by Katla Gunnarsdóttir. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Basic Black
  • Twitter Basic Black
  • Instagram Basic Black
bottom of page