top of page

Fingra-, handa- og iljaför

Vá hvað ég var með þetta á hreinu með hvað ég vildi gera. Ég hafði séð inn á Facebook svona DIY (e. Do it yourself) myndir og þar voru meðal annars fótaför sem var búið að breyta í fiðrildi og skrifa nafn barnsins sem átti það, fótafar við fæðingu. Hefði svo vilja sjá þetta fyrr en jæja það er ekki hægt að gera allt. Ég vissi hvað ég vildi gera en fór samt sem áður inn á Pintrest til að skoða fleiri hugmyndir og auðvitað sá ég annað sem ég var meira til í að útfæra á minn hátt.

 

Ég fékk afnot af myndlistastofunni í skólanum þar sem ég vinn því myndlistakennarinn mælti með að ég myndi notaði þykkari liti sem sýndu meira smáatriði en þeir litir sem ég átti heima. Ég studdist við plexí gler sem ég smurði litnum á og rúllaði honum svo á iljarnar á mér, hendur og fingur. Þegar ég gerði randaflugurnar rúllaði ég fingurgómana með svörtum lit og svo tók ég pensil til að setja gulu línurnar,  svo stimplaði ég á blaðið. Vængina og fálmara málaði ég fríhendis með pennsli. Einnig notaði ég pensil til að mála krónuna undir hendurnar (blómin) og stilkinn frá iljunum (laufblöðunum).

 

Ég var rosalega sátt við litina sem ég notaði nema hvíta þar sem ég bjóst við að hann myndi poppa meira upp á brúnleita pappírnum og vera meira hvítur.

© 2016 by Katla Gunnarsdóttir. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Basic Black
  • Twitter Basic Black
  • Instagram Basic Black
bottom of page