top of page

Málað í takt við tónlist

Það er mjög ólíklegt að mennskt samfélag hafi einhverntíman neitað sér um þá spennu og ánægju að dansa. Að sleppa sjálfum sér í taktföstum hreyfingum við tónlist er auðveldasta víma sem hægt er að komast yfir og ánægjan væntanlega aldrei langt frá. Taktur er ómissandi í dansi auk þess að vera undirstöðuþáttur tónlistar. Það er í eðlinu að slá taktinn í dansi með spítum eða kjuðum. Það er í eðlinu að fylgja hreyfingum með dansi í takt við tóna. Dans og tónlist voru í upphafi tengingin í trúarlegum athöfnum (History World, e.d.).

 

Í orðabókum og alfræðibókum er tónlist skilgreind sem listrænt form samskipta hljóðfæra eða söng tóna á uppbyggilegan og samfelldan hátt. Einnig er tónlist skilgreind sem ánægjuleg og hljómfagurt hljóð og líka þau hljóð sem söngvarar eða hljóðfæri framkalla. Þetta er ein af fjölmörgum skilgreiningum sem hægt er að finna enda það sem er tónlist í mínum eyrum er ekki tónlist í eyrum annarra (Estrella, 2015).

 

Í flestum menningarsamfélögum til forna var grundvallarþátturinn dansinn í trúarlegum athöfnum. Til forna í Egyptalandi sýndu prestar og hofgyðjur (kvenprestar), í fylgd með hörpum og pípa, virðulegan og táknrænan látbragðsleik í sögu Guðanna eða til að líkja eftir mynstri alheimsins eins og takti næturinnar (History World, e.d.).

 

Á heimasíðu tónmennt og tónmenntakennslu (2016) segir að við hreyfum okkur til að upplifa tónlist á eigin skinni sem er ekki ósennilegt og fyrir utan það hvað við höfum gott af því að standa á fætur og hreyfa okkur til að koma blóðflæðinu af stað „þá er hreyfing órjúfanlegur partur af tónlist. Rytminn er í líkamanum og því kjörið að nota hreyfingu til að yfirfæra orð í tónlist og tónlist í orð“.

 

Í þessu verkefni á að hlusta á tónverk og skapa um leið myndverk á stórt blað úr fingramálningu með því að nota taktinn í laginu til að skapa. Markmiðið er að hafa gaman og njóta þess að hlusta á Björk Guðmundsdóttur syngja lagið it´s oh so quiet og jafnvel falla í einhverskonar trans og dansa í takt við tónlistina.

 

Aðferð

Fingramálning

Ég byrjaði á því að útbúa fingramálninguna útfrá uppskrift sem kennarinn gaf. Þegar ég var búin að gera málninguna fannst mér hún of þunn og bætti ég við maizenamjöli við litina þar til að ég var ánægð með þykktina.

 

Uppskrift að fingramálningu

 

2 msk sykur
1/3 bolli maizenamjöl (kornsterkja)
2 bollar kalt vatn

1/4 bolli glær uppþvottalögur
Matarlitir að eigin vali sem og magn

 

Blandið saman sykri og kornsterkju í lítinn pott, bætið smá saman við vatni. Hitið við lágan hita og hrærið þar til blandan verður jöfn næstum gegnsætt gel (ca. 5 mínútur). Þegar blandan hefur kólnað, hrærið þá saman við uppþvottalegi. Skiptið blöndunni jafnt í ílát og bætið við mismunandi matarlit.

 

Ég valdi að hafa fingramálninguna gula, laufgræna, ljós bláa, fjólubláa, appelsínugula og mórauða. Auk þess gerði ég tvöfalda uppskrift því ég vildi vera viss um að eiga nóg af málningu.

 

Efniviður

 

  • Maskínupappír (190x100)

  • Skæri

  • Álpappír

  • Pennslar

  • Sápa

  • Vatn

  • Handklæði

  • Þvottapoki

  • Þvottabali

  • Málningalímband

  • Skálar

  • Heftari

  • 2x striga (70x50)

  • Gafflar

 

Framkvæmd

Ég byrjaði á því að líma maskínupappírinn við gólfið með málningalímbandi. Því næst kom ég fyrir þvottabala, með volgu vatni í og sápu til að þvo iljarnar, ofan á handklæði og með þvottapoka á kanntinum til að nudda málninguna af ef þess þyrfti. Ég stillti málningunni upp á bakka með pennslum í og byrjaði ég á að mála iljarnar á elsta syninum, sem vildi ólmur taka þátt með mér en þessi aðferð var ekki hentug þar sem þetta var tíma frekt og málningin var byrjuð að þorna áður en hann komst á pappírinn og entist lítið.

 

Ný hugmynd spratt og náði ég í álpappír sem ég límdi líka við gólfið með málningarlímandi og hellti málningunni á álpappírinn sem við stigum svo ofan í og gátum haldið snurðulaust áfram að skapa í takt við tónlistina.

 

Dimma hundurinn (Border Terrier) okkar ákvað að taka þátt í gleðinni og hoppaði hún og gelti meðan hún dýfði loppunum í blauta málninguna.

Við sonurinn og hundurinn skemmtum okkur vel og hlógum mikið. Þetta var það gaman að við hlustuðum á lagið að minnsta kosti 5x.

 

Umræða og lokaorð

Fyrst fannst mér þetta ekkert spennandi verkefni og ef satt skal segja fannst mér þetta barnalegt en þegar ég byrjaði að vinna í málningunni byrjaði ég að hlakka til að dýfa tánum ofan í málninguna og dansa á pappírnum. Við sonurinn hoppuðum og skoppuðum um sem og snérum okkur í hringi, drógum tærnar eftir pappírnum og hlupum í hringi.

 

Það sem stóð upp úr hjá mér við þetta verkefni var að þetta varð að gæðastund með syninum þar sem við hlógum mikið og fengum í þokkabót að skapa.

 

Málverkið okkar passar ekki upp á vegg eins og er þar sem annað verkefni hlaut veggplássið en til að þess að málverkið myndi ekki skemmast splæsti ég í striga, úr Rúmfatalagerinum, og völdum við okkur fallegasta hlutann af pappírnum og heftaði ég hann við strigann og hengdi þannig upp á vegg.

 

Málningin var mikið að flagna og detta af og prufaði ég að spreyja hárlakki yfir alla myndina og virðist það hafa fest málninguna við pappírinn, eins og staðan er núna.

 

 

 

20160312_134324

20160312_134324

20160312_134412

20160312_134412

20160312_202402

20160312_202402

20160312_175917

20160312_175917

20160312_140655

20160312_140655

20160312_175904

20160312_175904

20160312_143000

20160312_143000

20160312_175828

20160312_175828

20160312_173452

20160312_173452

20160312_173431

20160312_173431

20160312_173427

20160312_173427

20160312_173412

20160312_173412

20160312_173348

20160312_173348

20160312_141443

20160312_141443

20160312_173342

20160312_173342

20160312_172028

20160312_172028

20160312_143828

20160312_143828

20160312_143823

20160312_143823

20160312_143819

20160312_143819

20160312_143755

20160312_143755

20160312_143746

20160312_143746

20160312_143720

20160312_143720

20160312_143715

20160312_143715

20160312_143228

20160312_143228

20160312_143225

20160312_143225

20160312_142948

20160312_142948

20160312_142943

20160312_142943

20160312_142939

20160312_142939

20160312_142109

20160312_142109

20160312_141447

20160312_141447

20160312_202450

20160312_202450

Heimild

E. Estrella. (2015). Introduction to music education. Sótt af http://musiced.about.com/od/beginnersguide/a/intro.htm.

History World. (e.d.). History of dance. Sótt af http://www.historyworld.net/wrldhis/PlainTextHistories.asp?historyid=ab82.

Tónmennt og tónmenntakennsla. (2016). Dans og önnur hreyfing. Sótt af http://skrif.hi.is/tonmennt/dans-og-onnur-hreyfing/.

© 2016 by Katla Gunnarsdóttir. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Basic Black
  • Twitter Basic Black
  • Instagram Basic Black
bottom of page