top of page

Sjálfsmynd

Trölla deigs gríman
Trölla deigið nýtt í skjaldböku líka
Úúúúúps!
Rós gerð úr eggjabakka
Rós gerð úr eggjabakka
Rósirnar tilbúnar og með glimmeri
Sjálfsmynd
Keramik gríma gerð af mér 1996
Tilbúin!
  • Áhöld

    • Hárblásari

    • Pennslar

    • Mót frá 1996

    • Matarolíu sprey

    • Svampur

Það var ekkert smá gaman að búa til trölla deig. Sem ég nota bene var að prófa í fyrsta skipti. Við yngsti sonur minn skemmtum okkur vel í að móta leirinn.

Þegar skúlptúrinn fór inn í ofn rann hann til á plötunni og eftir á að hyggja hefði e.t.v. verið sniðugt að leggja álpappír meðfram.

 

Fékk þá snilldar hugmynd að búa til í staðin fyrir trölla deigið, mína eigin grímu en þá vaknaði spurningin á ég að móta hana eftir einhverju eða gera fríhendis. Eftir mikla rannsóknarvinnu á gerð á móti fyrir grímuna sem er bæði mikil vinna og ég hefði ekki verið að nýta hluti sem ég á hérna heima í verkefnið, ákvað ég að nota keramik grímu sem ég gerði þegar ég var í 10. bekk (árið 1996).

 

Hugmyndina af blómunum fékk ég inn á pintrest því mig langaði að gera eitthvað meira og svo er þetta líka bara snilldar hugmynd í þokkabót.

 

Ég kaus að hafa grímuna í Dia de los Muertos þema þar sem að þessi menningar hefð er spennandi í mínum huga. Auk þess sem ég á til að hugsa mikið um dauðann og hvað verði um MIG, sálina mína. Kóngulóarvefnum bætti ég svo við því mér er ekkert svo rosalega vel við kóngulær.

 

  • Efniviður

    • Trélím

    • Morgunblaðið

    • Akríllitir

    • Glimmer

    • Eggjabakki

    • Álpappír

    • Sykurpúði

    • Klósett pappír

    • Tannstönglar

© 2016 by Katla Gunnarsdóttir. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Basic Black
  • Twitter Basic Black
  • Instagram Basic Black
bottom of page