top of page
Áhöld og efniviður
  • Tímaritabox úr pappa

  • Svamp

  • Límmiða

  • Pennsla

  • Tússpenna

  • Trélím

  • Akríl málningu

  • Prentara

  • Internetið

  • Hárblásara

Verkfærakista

Til að stuðla að ígrundun og andríki, persónulegum þroska og sveigjanleika í námi, frumkvæði og nýsköpun þarf að virkja og viðhalda sköpun sem er sagður vera grunnþáttur menntunar. Mikilvægi sköpunar kemur til að vera með nýrri og aukinni áherslu á sköpun á öllum sviðum sem viðkemur kennslu og nemenda við leit nýrra leiða í vinnubrögðum (Ingibjörg Jóhannsdóttir, Elísabet Indra Ragnarsdóttir og Torfi Hjartarson, 2012).

 

Í þessu fyrsta verkefni á að vinna að verkfærakistu úr opnum efnivið þar sem safnað verður öllum verkefnunum og efni frá kennara. Kennari hvetur nemendur að láta hugmyndaflugið ráða. Kistan á að segja frá eða lýsa á persónuleganhátt eiganda hennar. Tilgangurinn með þessu verkefni er að halda utan um gögn sem nýtast nemendum þegar á vinnumarkaðinn er komið auk þess á verkefnið að reyna á sköpunarkraft og ímyndunarafl. Nemendur kynna síðar verkefnið fyrir bekkjarfélögum sínum með því að deila hugsunum sínum og jafnframt æfa framsögn.

Verkefnið er byggt upp á þeirri reynslu sem hefur mótað heimsmynd mína og lífssýn sem ég fékk að kynnast af eigin raun þegar ég bjó á unglingsárum mínum í Afríku þar sem ég gekk í skóla, eignaðist vini hvaðanæva að úr heiminum, ferðaðist um landið og upplifði umhverfið, menninguna og þjóðina sem það byggir. Ég kynntist fátækrahverfi stórborgar og þeirri sáru neyð sem íbúar þess máttu þola.

 

Verkfærakistan mín eru þrjú tímaritabox úr pappa og segir hvert þeirra til um ákveðna hluti um persónuna sem ég hef að geyma.

Hvíta tímaritaboxið þar sem ég límdi utan á valdar tilvitnanir Nelson Mandela sem var mikill frumkvöðull og átrúnaðargoð. Hann sætti miklu óréttlæti sem hann lét ekki buga sig í baráttunni fyrir meðal annars mannréttindum og útrýmingu fátæktar. Auk þess klippti ég út heimsálfuna, Afríku, og límdi yfir tilvitnirnar hans í regnboganslitum vegna þess að Afríka er jafn fjölbreytt og fólkið sem það byggir. Það sem þetta tímaritabox táknar er lífsreynsla, upplifun og tilfinningar sem hafa gefið mér góðar dyggðir til að búa að og lifa eftir.

Gula tímaritaboxið segir til um vináttu og mikilvægi hamingjunnar í lífinu. Gulur er líka minn uppáhalds litur. Fiðrildið stendur fyrir nýjum tækifærum og nýju upphafi. Nóturnar eru tilvitnun í vináttu og kímni. Hér er allt það jákvæða sem lífið hefur uppá að bjóða.

Rauða tímaritaboxið er í rauninni tilvitnun í allt er þegar þrennt er. Auk þess hefur tölustafurinn 3 fylgt mér í gegnum árin og koma líka oddatölur mikið við sögu. Við hjónin eigum þrjá syni sem eiga afmæli 1., 5. og 15. Sjálf á ég afmæli 5. og eiginmaðurinn er svo 27. Rauður er tákn fyrir erfiðleika og jafnframt sigra fortíðar og framtíðar.

 

Sköpun og hugmyndarflug hefur yfirleitt verið auðvelt fyrir mig og spilar þrjóska og þrautsegja líka þar inní. Að fá að fara sína leiðir að hlutunum er það sem heldur mér forvitinni og í sköpunarham. Lífið væri leiðinlegt og litlaust ef allir væru innan sama ramma að mínu mati.

 

Heimild

Ingibjörg Jóhannsdóttir, Elísabet Indra Ragnarsdóttir og Torfi Hjartarson. (2012). Sköpun: grunnþáttur í menntun á öllum skólastigum. Í Aldís Yngvadóttir

 

og Silvía Guðmundsdóttir (ritstjórar ritraðar), Ritröð um grunnþætti menntunar. Sótt af http://www.menntamalaraduneyti.is/utgefid-efni/namskrar/themahefti-menntunar/.

© 2016 by Katla Gunnarsdóttir. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Basic Black
  • Twitter Basic Black
  • Instagram Basic Black
bottom of page