Skapandi starf
Katla Gunnarsdóttir
Sagan mín

Bella er lítil fílastelpa og hún á heima á sléttum Afríku með mömmu sinni, ömmu, tveimur eldri frænkum og einum yngri frænda sem heitir Jakob. Pabbi Bellu býr ekki með þeim lengur vegna þess að veiðiþjófar drápu hann.
Amma segir að veiðiþjófar er fáfrótt fólk sem hugsar bara um að drepa fíla til að ná stóru fallegu skögultönnunum okkar. Það er nefnilega hægt að selja þær fyrir peninga. Veiðiþjófarnir hugsa ekki um sorgina sem fylgir því að missa ást vin og þá hræðslu sem situr eftir í minningunni í staðin.
Ég er svo heppin að ég veit að það er ekki bara til veiðiþjófar. Nei hey, það er sko líka til fólk sem hjálpar okkur fílunum og reynir að hrekja veiðiþjófana í burt. Þetta fólk hjálpar líka fílum ef þeir slasast eða tínast frá fjölskyldunni sinni. Ég er stundum hræddu við þau samt, því þau líta út eins og veiðiþjófarnir og ég er ekki alltaf viss hvort þau eru gott fólk eða veiðiþjófar. Mamma segir að maður verði samt alltaf að vera varkár því maður veit aldrei hvað geti gerst.
Í dag ætlum við öll niður að vatnsbóli og ég hlakka svo til því þá hitti ég kannski Stínu vinkonu og ég fæ að fara í drullu bað. Ég elska drullu bað! Stína á heima með fjölskyldunni sinni í hinum endanum á sléttunni. Ég má ekki fara í heimsókn til hennar því þar búa ljónin.
Áður en við förum niður að vatnsbóli ætlum við að koma við hjá stóra trénu þar sem nashyrningarnir búa. Þar er nefnilega svo mikið af safaríku grasi og trjám með ávöxtum sem eru farnir að detta á jörðina og þá er svo auðvelt að finna þá, sérstaklega fyrir Jakob.
Jakob er svolítill kjáni en hann er líka svo lítill. Í fyrradag þegar við fórum niður að vatnsbóli óð Jakob svo langt út í að amma varð að ná í hann....hahahaha! Ég fór að hlægja því mér fannst þetta svo fyndið en mamma sá það og skammaði mig fyrir það.
En jæja mamma er að kalla. Ég verð að fara...
...bless, bless!