top of page

Lag og texti í boxi

9783841828347_thumb
20160313_212846_edited
20160313_212904_edited
20160313_212954_edited
20160313_213008_edited
20160313_213255_edited
20160313_213403_edited
20160313_212914
20160313_212901
20160313_212850
20160313_212831

Verkefnalýsingin fyrir þetta verkefni hljóðar svona: „Finnið ykkur stóra dós (verðlaust efni) Veljið 10 uppáhalds lögin ykkar, prentið út textann, límið á harðspjald og plastið. Setjið lögin í dósina [...].“

 

Það sem ég kom upp með var lítill morgunkorna kassi (míní útgáfa) sem ég límdi á eitt af mínum uppáhalds klassískulögum á með límstifti og plastaði svo með bókaplasti til að það myndi haldast betur á og endast lengur. Ég styrkti líka lokið með auka bókaplasti til að það myndi ekki rifna auðveldlega af. Því næst gataði og tvö göt á kassann, annað í lokið og hitt á aðra stærri hliðina og festi ég fjórar tölur eða hnappa á með tvinna og nál. Ég ætlaði að nota borða í upphafi en sá það yrði soldið mikið vesen að þurfa alltaf að þræða hann í gegn í hvers skipti sem ég lokaði. Ég fann því band sem ég hafði klippt af lúffum en það var samt ekki að sitja rétt í mér og byrjaði ég að gramsa þar til að ég fann teygju sem er notuð mikið í dag undir pollabuxur og í mittið á buxum til að þrengja. Ég klippti smá teyjubút og festi á hnappana.

 

Þegar ég valdi lögin var ég að hugsa um þau lög sem ég raulaði mikið eða mér finnst gaman að hlusta á, eru falleg og hefur einhvert persónulegt gildi.

Lögin sem urðu fyrir valinu voru:

 

  • Nammilagið

  • Sumarkveðja

  • Ding dong

  • Maístjarnan

  • Litla flugan

  • Tvær úr tungunum

  • Bláu augun þín

  • Þýtur í laufi

  • Smá kvæði

    • Fljúga hvítu fiðrildin

    • Afi minn og amma mín

    • Afi minn fór á honum Rauð

    • Sigga litla systir mín

 

Ég byrjaði að finna út stærðina á blaðinu sem passaði ofan í kassan og gerði ég líka ráð fyrir því að ég myndi plasta lögin í plöstunarvél. Aðal hausverkurinn var svo að prenta út lögin sjálf í réttri stærð svo þau kæmst fyrir á blaðinu. Þetta gekk allt upp að lokum og ég sátt við útkomuna.

Þegar ég var að vinna þetta verkefni var ég með spilastokk í huga.

 

 

© 2016 by Katla Gunnarsdóttir. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Basic Black
  • Twitter Basic Black
  • Instagram Basic Black
bottom of page