top of page
Skapandi starf
Katla Gunnarsdóttir
Skapandi starf (SPS 103)
Í áfanganum er fjallað um aðferðir í frístundastarfi þar sem mótaðar eru aðstæður til virkrar þátttöku á forsendum sköpunar, tjáningar og uppbyggilegra samskipta. Fjallað er um aðferðafræði reynslunáms, leiðir til að örva sköpunarhæfni einstaklinga og hvetja þá til tjáningar. Skoðuð eru gildi upplifunar og fagurfræði út frá hugmyndaheimi einstaklinga með það að leiðarljósi að efla sjálfsstyrk þeirra, félagsfærni og sköpunarmátt. Lögð er áhersla á að verkefni feli í sér áskorun, efli getu og færni og styrki félagstengsl.
Nánari upplýsingar um stuðningsfulltrúa námið er að finna hér.
bottom of page