top of page

Samstæðuspil

Í þessu verkefni átti að finna sér verðlausan efnivið sem gat verið ílát. Í ílátið átti að setja efnivið sem gefur mismunandi hljóð eins og sykur, sandur, baunir, steinar og cheerios.

Gera átti 5 mismunandi hljóðgjafa og tvennt af hverjum, eitt par.

 

Leikurinn gengur svo út á það að hrista annan hljóðgjafann og finna hinn á móti, para saman, til að finna samstæðu. Það á að heyra út frá hljóðunum hvernig á að para saman. Með þessu er verið að vinna með minni og heyrn (skynjun).

 

Ég valdi að klippa tindana innan úr eggjabökkum og líma saman með trélími og klósettpappír. Ég ákvað að hafa alla hljóðgjafana í upprunalegum lit til að ekki sé hægt að leggja á minnið litina sem fara saman eða annað mynstur.

Efniviðurinn sem ég setti inní voru hrísgrjón, salt, perlur, chia fræ og hörfræ.

 

Eiginmanninum, sonum og föður mínum fannst þetta rosalega sniðugt og gleymdu þeir sér alveg í að finna samstæður.

© 2016 by Katla Gunnarsdóttir. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Basic Black
  • Twitter Basic Black
  • Instagram Basic Black
bottom of page