Skapandi starf
Katla Gunnarsdóttir
Andlitsmynd




Í þessu verkefni á að notast við spegil og teikna sjálfan sig út frá því sem maður sér.
Markmiðið er að kanna andlit og umhverfi frá öðru sjónarhorni og líka að gera tilraun með til dæmis ljós og skugga sem falla á andlitið sem verið er að teikna.
Ég var lengi að koma mér að verki því þetta er svo ekki mín sterkasta hlið að teikna og hvað þá mannsandlit. Ég veit samt að ég get þetta það er bara að koma sér að verki og reyna á aðra sköpunarþætti sem ég er ekki dugleg að virkja.
Ég fékk góðar leiðbeiningar frá myndlistakennaranum í skólanum þar sem ég vinna um ákveðna tækni og sagði hún líka að þetta væri bara allt tækni og stærðfræði. Allir geta því teiknað. Hún útskýrði fyrir mér helstu tækni sem er notuð við gerð andlitsmynda og skugga. Ég horfði líka á frekar mörg myndbönd inn á YouTube. Þar sá ég nýja tækni við skugga gerð eins og að nota eyrnapinna til að draga til eða deyfa úr blýantinum og líka svona augnskugga púða sem er notaður í förðun. Uppfull af fróðleik og sjálfsöruggi ákvað ég að setjast loksins niður og byrja að prufa þessa tækni.
Ekki get ég sagt að ég hafi orðið fyrir vonbrigðum eftir fyrstu tilraun þannig séð. Auðvitað hefði ég viljað gera svo mikið betur eins og snillingarnir sem ég er búin að vera að horfa inn á YouTube en auðvitað hafa þeir verið að teikna í mörg ár og komin með meiri æfingu en ég. Því er ekkert annað en að halda áfram að æfa sig til að verða betri og betri.
Það væri gaman að bera saman myndina sem ég gerði núna við mynd sem er svo teiknuð af mér eftir mikla æfingu og nokkur ár.
Þetta segir manni að æfingin skapi svo sannalega meistarann og þolinmæðina þrautir vinnur alla. Þar sem að ég er ekki þekkti fyrir að vera þolinmóð tók ég þetta á þrjóskunni einni saman og viljanum að gera mitt besta.
Efniviður
-
Hvítt blað A4, 80gr
-
Blýantar
-
Puttann á mér
-
Strokleður
-
Eyrnapinna